Það veitir ekki af þegar fimmti dagur af höfuðverk nálgast. Rakinn og molluheitir dagar gera ekkert til að létta þrýstinginn í höfðinu og samviskubitið yfir að vera ekki í vinnunni, senda samt barnið í leikskólann, og taka á öllu sínu til að leggja sig útaf í íbúð fullri af drasli í stað þess að "nýta tímann" þá sjaldan sem maður er heima og á lausa stund.
Ekki að ég hafi breyst svo mikið eða þróað með mér stóran skammt af hreingerningaræði með mömmuhlutverkinu síðasta árið, en stór skammtur og oft illa haldin af -must-do-something-practical-if-not-running-after-child- töktum. Óðs manns æði að liggja einsog slitti mitt í draslinu í 25 stiga hita og sól. En höfuðið dunkaði og mig svimaði eftir skreppiferð til læknis þar sem ég græddi tómlegt samtal við konu sem talar mig í kaf og er svo gamaldags að gefa tilvísanir til sjúkraþjálfa á blaði en ekki rafrænt. Hún heimtaði að hitta mig til að mæla blóðþrýstinginn eftir að ég lýsti yfir höfuðverk. Ekkert að honum, ég er alltaf með blóðþrýsting einsog sérlega slök manneskja í góðu formi. Hvernig ég fer að því með stressi og form-leysi veit ég ekki. Hún pirraði mig óendanlega þegar hún lét mig standa upp og rúlla með öxlunum eldriborgarastyle og heimtaði að ég teygði á. Ekkert í samhengi við sársauka vegna liða í klemmu og mikið bólginna vöðva þar í kring sem kreista fram migrenihöfuðverk. Segi sjálfri mér að hún meini vel þó hún sé skrítin en lofa sjálfri mér í hvert skipti að finna nýjan lækni, sama þó það kosti peninga að færa sig.
Ég græddi líka morgunkaffi hjá David, franska vini okkar sem rekur beyglubúð í vedbæk sem er opin þegar honum hentar. Ég veit ekki hvernig hann varð vinur okkar, en hann var agalega hrifin af Halli sem hefur einmitt reynslu úr beyglubúð og þeir ræða saman á ensku af gömlum vana um daginn og veginn, ferðalög og bumbuna á mér. Tja, þegar ég var ólétt af Hilmari. Hann veit ekki af verðandi. Honum hefur ekki orðið tíðrætt um núverandi bumbu, enda meiri kökubumba en annað og vinátta okkar ekki alveg á því leveli að ég tæki slíkum aðdróttunum vel. Það er allavega ekki gott sölutrix fyrir croissants með kaffinu. Þegar hann nennir, setur hann stóla og franska fánann út, selur allskonar miniútgáfur af frönskum delikatessum með beyglum og góðu kaffi. Það varð sjaldgæf og yndæl voskentid, að við Hallur sitjum ein og fáum okkur kaffibolla í mjúkri morgunsólinni. Ég í veikindafríi og hann í skrifpásu á leið í bæinn á öll bókasöfn bæjarins að sækja eða skila bókum. Maður verður að njóta augnablikanna sem gefast.
Stundum er ég kjur og held að þetta sé nú bara búið, en svo stend ég of hratt upp og lít of hratt til hliðar, burðast með hilmar sem er farinn að síga mikið í, auk þess sem hann iðar og vill hlaupa undir girðinguna til hestanna eða á eftir einhverjum af skelfdu köttunum í hverfinu og kallar tsss tsss tsss, eða stingur af inn til nágrannanna eða ég leggst of harkalega á hliðina svo það brakar í bólgnum vöðvum og höfuðverkurinn segir dúnk og tekur allt yfir. En hann er skárri en í gær, eftir fyrstu hnykkinguna hjá kírópraktornum þegar allt varð hrikalegt. Svo vonandi verður þetta enn betra eftir töku tvö hjá henni á morgun, allavega á hinn daginn.
Vinnan var bara afslöppuð, sögðu mér að taka það bara rólega, slúttudu meilinu með god bedring og god ferie. Þau virðast ekki gera ráð fyrir mér aftur fyrr en eftir sumarfrí. Kannski reyni ég bara að hlýða, og fara vel með mig í nokkra daga svo ég verði orðin góð fyrir fríið. Já og geti orðið þrjátíu ára verkjalaus....
3 comments:
Vöðvabólgufélagi hér. Það er skrambi erfitt að ætla að vinna á þessari vöðvabólgu þegar maður þarf alltaf að vera með barn á arminum ... mitt er þó að minnsta kosti tiltölulega létt ennþá:)
úffff samúð. Ömurlegt að vera með svona hausverk og verki bara almennt! Fór einmitt íb akinu um daginn og þurfti að ganga við staf -staf! Amma mín er mun uppréttari...
En vona að þú sért betri í höfðinu ásta mín :)
Halló ljúflingur. Á ekkert að blogga meira? Mér líst svooo vel á þetta framtak :)
Post a Comment