Thursday, July 28, 2011

Bón um bros í pósti


Mikið skelfing sakna ég stundum tímans þegar allir blogguðu um allt og ekki neitt, þó ekki væri nema til að geta fylgst með mínu kæru vinkonum og öðrum þegar maður ekki heyrist reglulega. Feisbúkk hefur bara ekkert í það, allavega ekki þegar margir - þar með talið ég - eru bara ekkert duglegir að deila hugsunum sínum þar.

En nú stendur ýmislegt til og ég stefni á að setja sumt í orð. Áskorun um að standa sig. Sortera í rótinu, raða hugsunum í forgangsröð, móta nýja lífssýn. Hvernig vil ég hafa tilveruna? Síðustu ár hafa boðið upp á hvert tækifærið á fætur öðru til að endurskipuleggja hvað standi til. Sífellt í góðri trú og tilraun til að gera það besta úr hlutunum. Nú held ég samt að ég hafi trompað allt hitt. 

Sendi hér með bón á fuglabjargið í heild sinni um stuðning og jákvæðar hugsanir! Það er kannski langt á milli hittinga og knús ekki á hverju strái en ég er viss um að fjar-faðmlög virka líka.
Hvar stóð skrifað að það væri best að auðvelda sér hlutina?  Það er spennandi challenge að byrja í nýju mastersnámi og læra að jugla því með gaur í vöggustofu sem þarf að ná að sækja á réttum tíma hvað sem hópavinnu í hverjum kúrs og lestarsamgöngum líður. Það verður svo enn meira spennandi að gera það með vaxandi kúlu. Mest spennandi af öllu hlýtur svo að massa það krefjandi verkefni að klára prófin og eignast svo annað barn í lok janúar. Skreppa svo í smá fæðingarorlof og byrja aftur í skóla um haustið, nú með tvö börn.

Ég hef alveg séð um það sjálf að fá minikvíðaköst yfir praktískum hlutum, sem flest er enn óleyst og fátt hægt að sjá fyrir – því hver getur vitað nákvæmlega hvernig skólinn verður, hvernig meðgangan verður, hvernig barnið verður, hvernig Hilmar Gylfi tekur þessu öllu, hvernig vinnan verður, hvenær Hallur er búinn, hvenær hann fær vinnu og svo framvegis. En þó þetta hafi ekki verið formlega planað svona, eða kannski meira einsog þruma úr heiðskýru.... Þá erum við ljómandi hamingjusöm með þennan snúningsbolta frá lífinu. Eftir allt sem á undan er gengið og þá slæmu reynslu að missa tvisvar, þá lærðum við víst að maður stjórnar ekki hvernig og hvenær heilbrigð börn fæðast.  Nú fengum við þessi spil í hendurnar, og þá sjáum við það sem frábæran kost að við séum einmitt búsett á svona ofurbarnavinalegu umhverfi í augnablikinu og tilbúin að takast á við þá bilun að eiga tvö undir tveggja ára - erfið fyrstu ár með smábörn og svo vonandi samrýmd systkini með tveggja ára millibili sem hafa félagsskap hvort af öðru sama hvar við búum.  Halli fannst þetta nú bara um leið frábært og ekkert nema jákvæðnin (brjóstaþokan sem smitaði er jú frábær, hann man ekki einu sinni að það hafi verið eitthvað erfitt....) Þetta tekur víst líka meira á kroppinn á mér auk hormónasveiflna og hele badusen.  Ólýsanleg ógleði og vangefin ofþreyta litaði aðeins fyrstu mánuðina hjá mér, auk algjörrar vantrúar að þetta gæti verið. Og settur dagur sami og í fyrsta skipti sem ég var ófrísk.  Það kom á daginn að það er víst eitthvað annað að komast í gegnum þessa fyrstu mánuði þegar það er stuð og hlaup á eftir þessum 15 mánaða sem tekur við eftir vinnuna og engin hvíld á sófanum með fæturnar upp í loft.

En mér líður betur núna, og vona að þetta fljótt líði hjá. Get ekki beðið eftir smá sumarfríi sem hefst með afmælinu mínu. Við fórum í sónar fyrir nokkru og kvíðinn sem tengist þessum bévítans skjá reyndist óþarfi, lítið kríli spriklaði, teygði úr sér og nuddaði augun.  Mini-vera auðvitað ennþá, en svei mér þá ef prófíllinn minnti ekki á bollukinnarnar hans Hilmars. Þetta þýðir líka að jólafrí á íslandi er út úr myndinni, það stóð eiginlega ekki til þar sem það er næstum ekkert frí í skólanum og próf í janúar – en það er samt skrítin tilfinning að “mega ekki” fara heim.  

Einn dag í einu, njóta yndislegs tíma með Hilmar sem er að verða svo stór, duglegur og skemmtilegur, rauðu, appelsínugulu og gulu sólblómanna í bakgarðinum, jarðaberjaplönturnar sem fjolga sér út úr kössunum og troða sér milli flísanna, bráðum nýtt nám að minnsta kosti hálfa vikuna og vinna hinn helminginn og kúlunnar sem fljótlega fer að taka meira pláss. 

Þetta verður gott, því ég er búin að ákveða það. :) 

9 comments:

Sigrún said...
This comment has been removed by the author.
Sigrún said...

Verður Yndislegt!! :) enn og aftur til hamingju bæði tvö/þrjú..nei bráðum fjögur ;)

Regnhlif said...

Þetta er svo dásamlegt:)

Ji, en ég get ímyndað mér að þetta sé ekki auðvelt! Hugsaði það oft á minni meðgöngu hvað ég var fegin að vera ekki með lítið kríli sem þyrfti að sinna í ofanálag. En svo er þetta allt þess virði:) Og það er held ég ótrúlega mikils virði að eiga börn sem geta leikið sér saman: mín reynsla í barnapössun er allavega sú að það er oft auðveldara að passa tvö í einu en eitt.

Regnhlif said...

Og ég er mjög ánægð með bloggplön. Ég sakna svo bloggtímans þegar allir blogguðu. Feisbúkk er alls ekki jafn gott.

Heiða said...

Til hamingju með kúluna.

Það getur verið eftitt að ímynda sér hvernig lífið breytist með seinna barni en trúðu mér það verður bara betra. Hjartað er vöðvi sem stækkar um helming með hverju barni ;)
Gangi þér rosalega vel.

gebba töff said...

Til hamingju elsku ástan mín! þetta verður yndislegt hjá ykkur -og ég efa ekki að Hilmar Gylfi muni taka sig vel út í hlutverki stóra bróður :)

gebba töff said...

Og ég er sko MEGA ánægð með að þú sért aftur farin að blogga! hef saknað þess tíma þegar allt uppáhalds fólkið manns bloggaði og leyfði manni að fylgjast með daglega lífinu :)

Ásta & allir said...

Takk fyrir fallegar kveðjur og jákvæðni mínar kæru, það yljar svo sannarlega inn að hjartarótum!

Earl said...

Þetta er æði! Ætla að fylgja fordæmi hinna stúlknanna í hópnum og kommentera hérna líka (á gamaldags góða mátann) ;) þetta eru yndislegar fréttir elsku besta mín, vona að allt gangi vel og að verkirni fari fyrir ammli :) Knús í þitt hús ;) Svo krefst ég þess að fá bumbumyndir :D